Um okkur

Byggingavöruverslunin í Þorlákshöfn

„Ef við eigum það ekki til, þá reddum við því!“

BÚÐIN Perlan ehf. er lítil byggingavöruverslun í Þorlákshöfn sem hóf starfsemi sína í október 2024. Búðin er hugsuð til að þjónusta íbúa og iðnaðarmenn Þorlákshafnar með helstu vörur og verkfæri.

Þorlákshöfn er í mikilli uppbyggingu og því mikilvægt að geta haft verslun á staðnum — þannig þarft þú ekki að keyra alla leið í bæinn eða á Selfoss eftir hlutunum. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og breitt vöruúrval, og ef varan er ekki til á lager úútvegum við hana fyrir þig.

Eigendur eru hjónin Ingibjörg Elín Baldursdóttir og Guðmundur Örn Hansson.

Við reddum því

Ef varan er ekki á lager útvegum við hana fyrir þig án tafar.

Fagleg ráðgjöf

Ráðgjöf um vörur og verklag fyrir hvaða verkefni sem er.

Persónuleg þjónusta

Lítil verslun með stóra þjónustulund í hjarta bæjarins.

Opnunartími

  • Mánudagur–Föstudagur: 8:30–17:00
  • Laugardagur: 10:00–14:00
  • Sunnudagur: Lokað